-68-
ISL
Notandahandbók
• Tengileiðslan verður að vera spennulaus við uppsetningu. Takið aflgjafann úr sambandi og notaðu
prófunartæki fyrir spennu til að tryggja að leiðslan sé spennulaus.
• Örugg notkun er ekki lengur möguleg ef tækið er sýnilega skemmt.
• Setjið LED-flóðljósið upp í að minnsta kosti 2,3 m hæð (þar sem fólk nær ekki til).
• Það ætti að vera að minnsta kosti 1 m bil á milli flóðljóssins og þess hlutar sem
þú vilt lýsa upp.
• Setjið LED-flóðljósið upp á vegg þannig að hreyfineminn sé fyrir neðan
flóðljósið.
• Hlífðarhús LED-flóðljóssins getur orðið mjög heitt við notkun. Tryggið að flóðljósið sé loftræst á
viðunandi máta til að ýta undir dreifingu á þeim hita sem myndast.
•
Hætta á meiðslum sem draga til dauða vegna raflosts!
Forðist að skemma neinar vatns-,
rafmagns- eða fjarskiptalínur þegar göt eru boruð. Notið staðsetningartæki fyrir línu.
Hvar staðsetja skal LED-flóðljós
• Komið vörunni aðeins fyrir á stöðugu yfirborði, t.d. múrhleðslu.
• Veljið stað sem varinn er fyrir vindi og regni (t.d. undir þakskeggi).
Hvar staðsetja skal ekki LED-flóðljós
• Verndið tækið fyrir:
Hitastigi yfir 40 °C
Hitastigi undir -10 °C
Beinu sólarljósi
Ryki
•
Hætta á rafstuði!
Þó að hluturinn sé skvettheldur (IP44) skal ekki nota hann í nálægð við vatn
eða aðra vökva eða á stöðum þar sem vatn eða annar vökvi getur safnast saman. Ekki setja hlutinn
á kaf í vatn. Haldið vörunni í að lágmarki 5 metra fjarlægð frá sundlaugum og tjörnum. Verndið
stofnleiðsluna fyrir raka.
• Haldið vörunni í að lágmarki 10 cm fjarlægð frá öðrum hlutum til að tryggja viðeigandi
loftræstingu. Setjið tækið upp á vel loftræstum stað. Tryggið að tækið sé ekki hulið af runnum,
laufum eða álíka hlutum.
• Setjið ekki tækið á stað sem er háður miklum hitabreytingum, t.d. nálægt viftum, loftkælingu og
hiturum.
• Setjið LED-flóðljósið ekki upp á mastur.
• Setjið LED-flóðljósið ekki upp á loft.
• Beinið ekki hreyfinemanum að yfirborði sem endurkastar ljósi og svæðum á borð við sundlaugar
eða tjarnir.
• Hitageislun fer í beinni línu en stöðvast vegna glers eða annarra þéttra hluta. Þess vegna skal ávallt
athuga með hugsanlegar hindranir af þessu tagi áður en uppsetning á sér stað.
• Dýr (t.d. hundar, kettir, fuglar) og ökutæki sem hreyfast á nemasviðinu kunna að vekja
hreyfinemann.
1
m
24794747_24810360-ProfiDepot-IM-V03-Multi.indb 68
23/9/2016 12:13 PM