32
CKB1901S
IS
ELVITA KAFFIVÉL
Lestu þessar notkunarleiðbeiningar vandlega áður en kaffivélin er tekin í notkun.
Geymdu notkunarleiðbeiningarnar til framtíðarbrúks síðar meir til að koma í veg fyrir
ranga notkun eða líkamsskaða.
Í handbók þessari munum við einnig vísa til kaffivélarinnar sem „tækið“.
ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
• Tækið má eingöngu tengja við jarðtengda innstungu
með rafspennu upp á 220–240 V, 50/60 Hz.
• EKKI skilja börn eftir án eftirlits nálægt tækinu.
• Börn og einstaklingar með skerta líkamlega,
skynjunarlega eða andlega getu eða sem skortir
reynslu og þekkingu geta notað tækið, ef þau eru undir
eftirliti eða fá leiðbeiningar um örugga notkun tækisins
og skilji þær áhættur sem í henni felst.
• Staðsetja skal tækið á sléttum, þurrum fleti innandyra
og fjarri hitagjöfum.
• Ekki dýfa tækinu ofan í vatn eða svipaða vökva, t.d.
þegar verið er að þvo það.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka tækið úr
sambandi við rafmagn þar sem það getur skemmt
snúruna; taktu í klóna þegar þú tekur það úr sambandi.
Ef einhverjar skemmdir eru á rafmagnssnúrunni eða
tækinu má alls ekki nota það heldur skal láta gera við
það á viðurkenndu þjónustuverkstæði.
• Ef tækið er notað í öðrum tilgangi en það er ætlað
fyrir, eða ef það er notað án þess að farið sé eftir
notkunarleiðbeiningunum þá er notandinn ábyrgur fyrir
afleiðingunum af því. Ábyrgðin og skilaréttur falla úr
gildi ef tækið skemmist vegna rangrar notkunar.
Summary of Contents for CKB1901S
Page 7: ...7 CKB1901S ...
Page 13: ...13 CKB1901S ...
Page 19: ...19 CKB1901S ...
Page 25: ...25 CKB1901S ...
Page 31: ...31 CKB1901S ...
Page 37: ...37 CKB1901S ...