109
Íslenska
• Skoðið gasverkfærið fyrir notkun til að ganga úr
skugga um að það sé í góðu ástandi og virki rétt.
Leitið eftir vanstillingu eða hindrunum á hreyfingum
hreyfanlegra hluta, eða öðrum einkennum sem
gætu hindrað eðlilega virkni. Notið verkfærið ekki ef
eitthvað ofantalinna skilyrða eiga við, þar sem þau
geta valdið bilun í verkfærinu.
• Þegar verkfærið er skilið eftir í hvíldarstöðu skal
nota beltið/krókinn eða leggja verkfærið frá sér með
framhliðina eða hægri eða vinstri hlið niður. Leggið
verkfærið aldrei niður þannig að „nefið“ vísi að
notandanum, eða neinum öðrum sem kann að vera
nærri.
• Aðeins fólk með nægilega tæknilega færni og þau
sem hafa lesið og skilið notkunar- og öryggisleiðbei-
ningar fyrir verkfærið mega nota þetta gasverkfæri.
• Haldið börnum og óviðkomandi fólki fjarri á meðan
verkfærið er notað. Allar truflanir geta leitt til þess að
notandi missir stjórnina á verkfærinu.
• Geymið gasverkfæri, efnarafala, hleðslutæki og
rafhlöður sem ekki eru í notkun þar sem börn ná
ekki til og leyfið engum sem ekki hafa fengið þjálfun
í notkun verkfærisins og fylgihluta þess og hafa
ekki lesið þessar leiðbeiningar að nota verkfærið
eða fylgihlutina. Gasnaglabyssur eru hættulegar í
höndum óþjálfaðra notenda.
• Geymið gasverkfærið ekki við hitastig sem fer yfir
49 °C. Hátt hitastig getur leitt til sprengingar eða
eldsvoða og losunar eldfimra gastegunda. Þegar
verkfærið er ekki í notkun skal geyma það fjarri
hitagjöfum eða beinu sólarljósi.
• Skiljið verkfærið ekki eftir óvarið gegn regni
eða annarri bleytu. Ef vatn berst inn í gasknúna
verkfærið eykur það hættuna á raflosti og/eða bilun
í verkfærinu.
• Gerið alltaf ráð fyrir að það gætu verið hefti eða
naglar í gasnaglabyssunni. Ef gasverkfærið er
meðhöndlað af ógætni getur það leitt til þess að
naglar skjótast úr henni fyrir slysni og valdið slysum
á fólki.
• Notandi skal aldrei beina gasverkfærinu að sjálfum
sér eða neinum í grenndinni, hvort sem í því eru
naglar eða ekki. Ef kveikt er óvænt á verkfærinu
hleypur hefti eða nagli úr byssunni og veldur slysi.
• Þvingið aldrei verkfærið. Notið það gasverkfæri sem
hentar best verkefninu hverju sinni þar sem slíkt
auðveldar verkið og er eykur öryggi í notkun með
hliðsjón af þeirri spennu sem verkfærið var hannað
fyrir.
• Hleypið aldrei nagla úr gasnaglabyssunni nema hún
hafi verið staðsett þétt upp að stykkinu sem unnið
er með. Ef gasverkfæri er ekki í snertingu við stykki
sem unnið er með er hugsanlegt að naglinn hitti
ekki tilætlaðan stað.
• Skjótið ekki úr gasnaglabyssunni í efnivið sem er
of harður eða of mjúkur. Harður efniviður getur
endurkastað naglanum og valdið meiðslum en mjúkt
efni getur hleypt naglanum of auðveldlega í gegn og
valdið því að hann hlaupi í gegn.
• Skjótið ekki nöglum yfir aðra nagla.
• Sýnið sérstaka aðgát þegar nöglum er skotið í
fyrirliggjandi veggi eða aðra fleti með óþekktum
innviðum, til að forðast að naglar lendi í óséðum
hlutum eða fólki hinum megin við flötinn (t.d.
rafleiðslum, lögnum, rafmagnssnúrum.)
• Þegar nagla hefur verið skotið úr gasnaglabyssunni
er hugsanlegt að verkfærið hrökkvi til baka
(„bakslag“) og hreyfist til frá vinnufletinum. Til
að draga úr slysahættu skal ævinlega stjórna
bakslaginu með því að:
· hafa ævinlega fulla stjórn á verkfærinu og
vera reiðubúin að bregðast við eðlilegum
og skyndilegum hreyfingum þess, svo sem
bakslagi.
· gera ráð fyrir bakslagi sem hugsanlega færir
verkfærið frá vinnufletinum.
· veita ekki viðnám gegn bakslaginu, sem getur
valdið því að gasverkfærið þrýstist aftur upp að
vinnufletinum.
· halda andliti og líkamshlutum frá verkfærinu.
• Þegar unnið er nálægt jaðri stykkis eða við krappt
horn skal gæta þess vel að lágmarka flísamyndun,
sprungumyndun eða frákast eða endurvarp nagla,
sem getur valdið slysum.
• Notið gasverkfærið ekki til að festa niður rafleiðslur
eða rafmagnssnúrur. Verkfærið er ekki hannað fyrir
uppsetningu raflagna og getur skemmt einangrun á
rafleiðslum og rafmagnssnúrum, sem getur orsakað
raflost eða eldhættu. Verkfærið er enn fremur ekki
einangrað gegn áhrifum frá snertingu við rafmagn.
• Notið verkfærið aldrei til að framkvæma nein
önnur verk en það er sérstaklega hannað til að
framkvæma. Einkum skal forðast að nota það sem
hamar. Ef verkfærið verður fyrir höggi eykur það
hættuna á að sprungur myndist í yfirbyggingunni og
naglar skjótist úr því fyrir slysni.
• Notið gasverkfærið ekki ef öryggismerkingar vantar
eða ef þær eru skemmdar og ólæsilegar.
Summary of Contents for TJEP GRF 34/90 GAS 3G
Page 2: ...www tjep eu...
Page 4: ...2 2 3 6 6 7 7 7 7 8 8 8 9 9 9 9 LED 9 10 10 11 TJEP...
Page 5: ...3 CE CE CE...
Page 6: ...4 49 C 120 F...
Page 7: ...5 Kyocera Unimerco Fastening Kyocera Unimerco Fastening...
Page 10: ...8 3...
Page 11: ...9 1000 4000 2 Phillips TJEP TJEP ST 15 50 GAS 2 TJEP ST 15 50 GAS LED 2 1 LED LED LED...
Page 80: ...78 78 79 82 82 83 83 84 84 84 84 84 85 85 85 85 LED 85 86 86 87 TJEP...
Page 81: ...79 CE CE CE...
Page 82: ...80 49 C 120 F...
Page 83: ...81 Kyocera Unimerco Fastening Kyocera Unimerco Fastening...
Page 86: ...84 3...
Page 87: ...85 1 000 4 000 2 TJEP TJEP ST 15 50 GAS 2 TJEP ST 15 50 GAS LED 2 1 LED LED...
Page 243: ...www tjep eu EXPLORE OUR WEBSITE FOR MORE INFORMATION...