OUTDOORCHEF.COM
100
101
EINSTAKT TREKTARKERFI
Hvort sem ætlunin er að grilla, elda eða baka sér trektarkerfið frá OUTDOOR
CHEF
í venjulegri stöðu til þess að hitinn dreifist jafnt innan kúlunnar
og kemur í veg fyrir að fita brenni, þar sem brennararnir eru fullkomlega varðir.
Ekki kviknar í fitudropum sem leka af matnum því þeir renna niður eftir postulínsgljábrenndu trektinni og ofan í safnbakkann undir kúlunni. Þú getur
einbeitt þér að gestgjafahlutverkinu á meðan kræsingarnar grillast fullkomlega, án þess að það þurfi að snúa þeim.
Kjöt, fiskur, grænmeti og fleira verður einstaklega safaríkt, meyrt og stökkt. Þar sem hluti fitunnar og kjötsafans sem rennur í trektina gufar upp fær
maturinn líka hina ómissandi grilllykt.
Við allt að 360 gráðu hita fá pítsur og brauð frábæra grillbökun sem jafnast á við gæði úr steinofnum. Þegar vinstri snúningshnappurinn er notaður
er maturinn grillaður sérstaklega varlega við lágt hitastig sem er um það bil 100 °C (aðeins gerðir með tveimur skífum, t.d. Ascona 570 G) - bestu
forsendur smjörmjúkra XL kjötbita eins og roastbeef, tomahawk eða rib-eye í heilu lagi.
Með því að snúa trektinni í eldfjallsstöðuna er hægt að elda með mjög háum hita neðan frá sem beinist að ákveðnum stað (allt að 500 gráður). Þessi
staða hentar fullkomlega fyrir OUTDOOR
CHEF
-fylgihluti eins og wok-grillpönnuna, Aroma-pönnuna eða steypujárnsplötuna.
Þar sem trektin heldur kúlugasgrillinu hreinu að innan er leikur einn að þrífa það.
ÁBENDING
: Við ráðleggjum að stilla grillið á hæstu stillingu í 10 mínútur til að þrífa trektina (venjuleg staða). Síðan er trektin bara burstuð með
messingbursta. Við mælum með því að nota OUTDOOR
CHEF
-trektarburstann.
Frekari upplýsingar um fylgihluti frá okkur: WWW.OUTDOORCHEF.COM
VENJULEG STAÐA
Venjuleg staða trektarinnar hentar best fyrir flestar grillaðferðir og tryggir að hitinn dreifist jafnt
og vel um kúluna. Maturinn grillast þá jafnt á öllum hliðum án þess að það þurfi að snúa honum.
Kjöt, fiskur, grænmeti og fleira verður einstaklega safaríkt, meyrt og stökkt við þessa meðferð.
Þannig er venjuleg staða tilvalin fyrir hvers kyns kjöt, til að grilla fisk á lægri hita, gratínrétti,
stökkt grænmeti og einnig til að baka pítsur og brauð.
ELDFJALLSSTAÐAN
Með því að snúa trektinni í eldfjallsstöðuna er hægt að elda með mjög háum hita neðan frá sem
beinist að ákveðnum stað. Þessi staða hentar fullkomlega fyrir OUTDOOR
CHEF
-fylgihluti eins
og wok-grillpönnuna, Aroma-pönnuna eða steypujárnsplötuna.
Hún hentar því mjög vel fyrir snöggsteikingu eins og á túnfisksteikum, hörpuskeljum eða wok-
grænmeti.