87
Dælan verður að tengjast útstöðvum eða start-búnaði sem komið hefur verið fyrir
nógu hátt til að ekki flæði yfir hann.
Öll vinna við rafmagn skal vera í höndum löggilts rafvirkja.
Mótor skal aðeins opna á verkstæði. Allar mælingar verður að gera á lausa enda
kapalsins.
Kannið hvort spenna í aðalæð, tíðni, búnaður og aðferðir samræmist þeim
upplýsingum sem stimplaðar eru á skiltið með flokki mótorsins.
Tiltekin tíðni verður að vera innan við ±1Hz tiltekin spenna innan ±5% af þeirri
tíðni og spennu sem aflgjafi er gefinn upp fyrir. Kannið hvort rafliðar, sem bregðast
við of miklum hita, samræmist uppgefnum straumi dælunnar og hvort þeir séu rétt
tengdir.
Rafmagnstengi
VARÚÐ!
Uppsetning rafkerfis skal ávallt vera í samræmi við ríkjandi
reglur á hverjum stað.
Tenging á leiðurum í dælu og mótor
Ef dælan er ekki útbúin með tengli skuluð þið vinsamlegast hafa samband við
söluaðila Tsurumi.
Til að tryggja réttar tengingar þarf að liggja fyrir vitneskja um fjölda leiðara,
eftirlitsbúnað og hvernig hefjast skuli handa (sjá nafnaskilti).
VARÚÐ!
Allur rafbúnaður verður alltaf að vera jarðtengdur. Þetta gildir
jafnt fyrir dæluna og eftirlitsbúnað.
Rangar tengingar geta leitt til straumleka, raflosts eða elds.
Tryggið að notaður sé jarðtengdur lekaliða og vörn gegn yfirstraumi (eða
rofa) til að forða dælunni frá skemmdum sem gætu leitt til raflosts.
Óstöðug jarðtenging getur valdið því að dælan verði óstarfhæf mjög fljótt
vegna raf-galvanískrar tæringar.
VARÚÐ!
Áður en cabtyre kapallinn er tengdur við stjórnstöð skal
tryggja að aflgjafinn (þ.e. útsláttarrofinn) sé aftengdur á
fullnægjandi hátt. Misbrestur á því getur leitt til raflosts,
skammhlaups eða meiðsla sem óvænt gangsetning dælunnar veldur.
Cabtyre kapall
Séu ein eða fleiri framlengingarsnúrur notaðar þurfa þær e.t.v. að vera stærri en
dælukapallinn, í samræmi við lengd og mögulega aðra hleðslu. Rafmagnssnúna
með ófullnægjandi sverleika leiðir til spennufalls og þ.a.l. til þess að mótor og
snúra ofhitni, sem getur leitt til endurtekinna stöðvana mótors, óáreiðanleika,
skammhlaups, elds, straumfalls og raflosts. Sama gildir um skemmdan eða illa
frágenginn kapal – enn frekar ef hann er undir vatni. Ekki ætti að reyna að skipta
um eða skeyta saman dælukapli eða opna mótorinn fyrir utan verkstæði með
hæfu starfsfólki.
Tryggið ávallt að ekki sé togað í kapalinn, hann kraminn, skrámaður eða snúið
uppá hann, þar sem koparleiðararnir eru viðkvæmir og þurfa að halda einangrun
sinni til að koma í veg fyrir spennufall, skammhlaup eða raflost. Leggið ekki neitt
þungt á kapal sem liggur upprúllaður, þar sem spennan sem getur hlaðist upp
getur brennt gat á einangrunina.
ATHUGASEMD!
Ef kló og tengill eru notuð, ætti jarðtengingin að vera lengri en fasarnir til
að tryggja að hinar leiðslurnar muni, ef til mikils átaks kemur, slitna fyrst.
Starfræksla
Áður en hafist er handa:
Kannið hvort allir hlutaðeigandi aðilar séu sammála um
að allri forkönnun sé lokið. Kannið hvort allir skrúfboltar
séu hertir og dælunni sé vel komið fyrir, hvort
afrennslisslangan sé ekki tengd og tryggið að enginn
snerti vatnið né sé nálægt slöngum eða rofum. Verið
tilbúin til að stoppa tafarlaust.
VARÚÐ!
Upphafskippurinn getur verið
ofsafenginn. Haldið ekki í handfang
dælunnar þegar könnuð er
snúningsstefna. Tryggið að dælan sé örugglega
fest og geti ekki snúist.
VARÚÐ!
Viðsnúning á snúningsstefnu tengils, sem hefur engan búnað
til að víxla fösum, má aðeins framkvæma af þar til bærri
manneskju.
VARÚÐ!
Ef innibyggða mótorvörnin fer af stað stöðvast dælan, en fer
aftur af stað af sjálfu sér þegar hún hefur kólnað aftur.
ALDREI skal opna mótorinn til að framkvæma mælingar, þær
er hægt að gera á lausa enda kapalsins.
VARÚÐ!
Ávallt skal skipta um laskaðan kapal.
AÐVÖRUN!
Setið aldrei hendi eða aðra hluti inn í innrennslisopið undir
dæluhlífinni þegar dælan er tengd við rafmagn.
Áður en dæluhlífin er skoðuð skal ganga úr skugga um að
dælan sé ekki tengd við rafmagn.
Kapall:
Halda þarf kaplinum þétt við dæluna til að koma í veg fyrir að hann dragist inn í
inntak dælunnar og klippist í sundur. Ekki skal hleypa spennu á upprúllaðan
kapal, þar sem spenna getur byggst upp og rofið einangrunina. Ef
rafmagnskapallinn og hæðarstjórnarkaplar eiga að fara í gegnum steypu eða
jarðveg þurfa þeir að vera nógu langir til að hægt sé að lyfta dælunni á golf til
skoðunar. Gera þarf rás til þess að draga kaplana í gegnum, því
rafmagnskapalinn má ekki losa frá mótornum þegar dælan er fjarlægð til þess að
fara með hana á verkstæði og e.t.v. þarf að skipta um kapalinn.
Kapallinn og möguleg vatnsþétt tengsl hans og framlengingarkapall þurfa að ná
nógu hátt til að enginn hætta sé á að flæði yfir hann.
Rafvirki getur lengt í kapli og gert samskeyti vatnsheld, hafi hann reynslu í því,
hafi viðeigandi 3M eða jafngildan búnað og framkvæmi hann 24 stunda
köfunarpróf (þar sem endanum er haldið úr vatninu og leitað er eftir a.m.k. 20M
Ohm einangrun); skipti á kapli eru ávallt æskileg og skulu aðeins framkvæmast á
verkstæði. Spennufall vegna lélegs kapals á milli aflgjafa og dælu er
langalgengasta ástæðan fyrir að mótorar hætta að virka.
Athugið: Fylgið þessum leiðbeiningum nákvæmlega, annars gæti mótorinn
brunnið úr sér!
Dælan mun kippast til rangsælis þegar horft er að ofan og gefur það til kynna að
hún gangi réttsælis. Ef ekki, þá þarf rafvirki að víxla varlega tveimur af þremur
leiðurum U, V og W þegar kemur að því að tengja dælukapalinn við ræsi.
Í tilfelli star delta-rofa, vinsamlegast ráðfærið ykkur við Tsurumi söluaðila.
Til þess að tengja kaplana rétt við stjórnborðið skal fara eftir
skýringarmyndinni sem finna má í töflunni í viðaukanum